Allt að 5.000
króna verðmunur er á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu dekkja á jeppa með
sautján tommu álfelgum (t.d. Mitsubishi Pajero), sem er 67% verðmunur. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði
hjá 49 þjónustuaðilum víðsvegar á landinu í vikunni.
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling á smábílum á fimmtán tommu felgum (t.d. Toyota Yaris), var dýrust hjá
Hjólbarðaþjónustu Áhaldaleigunnar í Vestmannaeyjum þar sem hún kostaði 7.500 kr. en ódýrust hjá
Hjólbarðaþjónustu Hafnarfjarðar, 4.990 kr. Verðmunurinn er 2.510 kr. eða 50%.Þjónustan fyrir smábíla hefur hækkað að
meðaltali um 6 % frá könnun sem ASÍ gerði þann 17. apríl sl.
Hæsta verðið á þjónustu fyrir jepplinga með sautján tommu álfelgum var hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels í
Kópavogi, 9.980 kr. en lægsta verðið er hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars, Fáskrúðsfirði, 6.000 kr. Þjónustan
fyrir jepplinga á sautján tommu stálfelgum var ódýrust hjá Bílabjörgun á Akureyri 5.900 kr. en dýrust hjá
Hjólbarðaverkstæði Kaldasels 7.290 kr.
Dekkjaskipti á meðalstórum jeppa með sautján tommu álfelgum (t.d. Mitsubishi Pajero), er dýrust hjá Bílabót á.
Sauðárkróki en ódýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði, 7.500 kr.
Dekkjahöllin neitaði þátttöku
Dekkjahöllin á Egilstöðum, Akureyri og í Reykjavík neituðu þátttöku í verðkönnun verðlagseftirlitsins.
Sjá nánar niðurstöður eftir landssvæðum í
töflu.
Kannað var verð á þjónustu á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjólbarða á 49 hjólbarðaverkstæðum í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabær, Húsavík, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Selfossi,
Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Neskaupsstað, Hornafirði og á Sauðárkróki.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu
söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.