Vinningshafar krossgátunnar 2023

Lausn krossgátunnar
Lausn krossgátunnar

Alls sendu 261 glöggir lesendur inn lausn við krossgátunni sem birtist í blaði félagsins í byrjun mars. Höfundur krossgátunnar er Bragi V. Bergmann og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Frestur til að skila inn réttu svari var til 31. mars.

Dregið hefur verið úr réttum lausnum og hljóta Ósk Jórunn og Margrét Kristbjörnsdóttir helgardvöl í orlofshúsi- eða íbúð félagsins í vetrarleigu í verðlaun.

Lausnin við krossgátunni er: 

Dropinn holar harðan stein

Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt og óskum vinningshöfum til hamingju.