Vinningshafar krossgátunnar 2024

Alls sendu 193 glöggir lesendur inn lausn við krossgátunni sem birtist í blaði félagsins í byrjun mars. Höfundur krossgátunnar er Bragi V. Bergmann og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Frestur til að skila inn réttu svari var til 8. apríl.

Dregið hefur verið úr réttum lausnum og hljóta Hákon Pétur Guðmundsson og Hjörleifur Gíslason helgardvöl í orlofshúsi- eða íbúð félagsins í vetrarleigu í verðlaun.

Lausnin við krossgátunni er: 

Hverjum þykir sinn fugl fagur

Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt og óskum vinningshöfum til hamingju.