Við minnum félagsfólk á að síðasti skiladagur vegna styrkja á þessu ári er til og með sunnudagsins 27. desember næstkomandi. Því hvetjum við öll sem hafa stundað heilsueflingu, verið í námi eða fengið úthlutað orlofsstyrk að skila inn gögnum fyrr en seinna.
Sérstakar leiðbeiningar hafa verið birtar vegna skila á gögnum fyrir úthlutuðum orlofsstyrkjum hér: https://www.fvsa.is/is/frettir/frettir/orlofsstyrkur-skil-a-gognum
Til að sækja um styrk í Starfsmennta- eða sjúkrasjóð þarf félagsmaður að skrá sig inn á Mínar síður á félagavefnum https://mitt.fvsa.is með rafrænum skilríkjum. Við innskráningu blasir valmyndin hér að neðan við.
Til að sækja um styrk þarf að velja > Umsóknir

Þá opnast þessi valmynd þar sem styrkflokkur er valinn. Á vef félagsins er hægt að lesa sér til um sjóðina sem hægt er að sækja um styrk úr:
Heilsa: styrkir úr sjúkrasjóð: https://www.fvsa.is/is/sjukrasjodur/sjukrasjodur/styrkir
Menntun: styrkir úr Starfsmenntasjóð verslunar og skrifstofufólks: http://fvsa.is/is/sjukrasjodur/starfmenntasjodur/upplysingar-um-styrki

Þegar búið er að velja flokk (sjóð) til að sækja um styrk úr þarf að velja styrktegund:

Þá birtast upplýsingar um styrkinn sem þú er að sækja um, í þessu dæmi hefur viðkomandi valið heilsueflingarstyrk:

Í næsta skrefi er fylgiskjölum með umsókninni hlaðið upp. Fylgja þarf leiðbeiningum um tegundir skjala, t.d. setja inn reikning og/eða greiðslukvittun eftir því sem við á:

Í fimmta skrefinu þarf að fara yfir persónuupplýsingar; símanúmer, netfang og bankareikningsnúmer.
Ef öll iðgjöld hafa skilað sér er hægt að sleppa skrefi 6 og fara beint í yfirferð á umsókninni áður en hún er send inn.
Við hvetjum félagsfólk til þess að hafa samband við skrifstofu félagsins með fyrirspurnir eða óskir um aðstoð ef á þarf að halda, annaðhvort með því að hringja í síma 455-1050 eða með því að senda línu á fvsa@fvsa.is