Lausar leiguvikur í sumar

Við vekjum athygli á að eitthvað er um lausar orlofsvikur í sumar eftir að opnað var fyrir bókanir undir formerkjunum Fyrstur kemur fyrstur fær. Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um hvernig félagsfólk getur bókað sumarleigu. 

Við hvetjum félagsfólk til þess að ganga úr skugga um að réttar tengiliðaupplýsingar séu skráðar inni á félagavefnum, vista farsímanúmer í réttum dálki og staðfesta netfang með því að ýta á þar til gerðan hnapp. 

Einnig minnum við á að opið er fyrir bókanir í orlofskerfinu sex mánuði fram í tímann og að hver félagsmaður er með bókunarheimild fyrir 7 nóttum í íbúð og 7 nóttum í sumarhúsi á hverju sex mánaða tímabili. Sjá nánari útskýringar hér að neðan. 

Félagsfólki er bent á að senda fyrirspurnir á fvsa@fvsa.is eða hringja í síma 455-1050

Leiðbeiningar fyrir bókun á orlofsvikum í sumar

Til að skoða lausar orlofsvikur í sumar skráir félagsmaður sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum á félagavefnum https://mitt.fvsa.is og velja Orlofskerfi í stikunni efst. 

 

Þá birtist yfirlitsmynd yfir orlofshús félagsins. Lausar eignir á sumartímabili eru gular í kerfinu

Til að bóka lausa viku er klikkað á hana og þá birtist eftirfarandi skjámynd. Mikilvægt er að fara yfir allar upplýsingar áður en ýtt er á Bóka núna

Við staðfestingu á bókun fær félagsmaður sent sms á skráð símanúmer með greiðsluhlekk til þess að greiða fyrir leiguna. Athugið að ef ekki er gengið frá greiðslu innan 24 tíma fellur bókunin niður.

Einnig er hægt að greiða fyrir leiguna með því að fara í gegnum þessa valmynd sem að birtist við staðfestingu á leigunni. Ýta þarf á stækkunarglerið í leigulínunni sem á að greiða fyrir. 

Þá opnast þessi valmynd. Til að greiða fyrir bókunina er ýtt á græna takkann Greiða með korti og þá opnast greiðslugátt þar sem gengið er frá greiðslunni. 

Sex mánaða bókunartímabil í stað vetrarleigu

Orlofseignir FVSA eru núna leigðar sex mánuði fram í tímann, að sumarúthlutun undanskilinni. Því verður ekki opnað á fyrstur kemur fyrstur fær fyrir vetrarleigur á ákveðnum degi, heldur opnar kerfið á bókanir sex mánuði fram í tímann. Ef félagsmaður ætlar t.d. að bóka orlofsíbúð 4.-7. desember 2026, þá opnast fyrir bókun á því tímabili sex mánuðum fyrr, að lokadegi leigu meðtöldum. Þannig getur félagsmaður bókað dvöl í orlofsíbúð 4.-7. desember þann 7. júní. Núna í lok febrúar opnast því fyrir bókanir á leigum í lok ágúst og svo koll af kolli.

Fjöldi gistinátta per. félagsmann

Félagsmaður getur verið skráður fyrir allt að sjö gistinóttum í Mánatúni (orlofsíbúð) og sjö gistinóttum í orlofshúsi (sumarhúsi) á hverju sex mánaða tímabili. Ef félagsmaður á t.d. bókaða helgarleigu frá 6.-9. febrúar (þrjár gistinætur) í Mánatúni á hann eftir fjórar gistinætur næstu sex mánuði í Mánatúni og sjö gistinætur í einhverju af sumarhúsum félagsins. Um leið og helgarleigan í febrúar er liðin bætast þessar þrjár nætur aftur við bókunarheimild félagsmanns. Athugið að sumarúthlutun orlofshúsa er undanskilin þessum reglum og hefur ekki áhrif á bókunarheimild félagsmanns, kerfið dregur hinsvegar úthlutuðum sumarnóttum af félagsmanni og því þarf viðkomandi að hafa samband ef hann vill bóka auk úthlutunar.