Við hvetjum félagsfólk og fjölskyldur þeirra til þáttöku í dagskrá í tilefni af verkalýðsdeginum þann 1. maí. Á Akureyri verður kröfuganga og hátíðardagskrá á Ráðhústorgi og á Siglufirði verður létt dagskrá ásamt veitingum.
13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu
Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni
Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði föstudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00. Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna flutt af Önnu Júlíusdóttur, formanni Einingar-Iðju.