Skráning á vinnufund

Vinnufundur um atvinnu- og kjaramál

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni býður til vinnufundar um atvinnu- og kjaramál miðvikudaginn 14. september kl. 18.30 í Lionssalnum, fjórðu hæð, Skipagötu 14, Akureyri.

Taktu þátt!

Vinnufundurinn er opinn öllum félagsmönnum og hvetjum við ykkur til þess að mæta og taka þátt í að móta stefnu félagsins í þeim málum sem framundan eru hjá heildarsamtökum launafólks.

Skráning

Félagsmenn þurfa að skrá sig til þátttöku á fundinn fyrir 13. september. Þú getur skráð þig með því að fylla út formið hér að neðan: