Stytting vinnu vikunnar

Í samningnum er gert ráð fyrir styttri vinnuviku félagsmanna FVSA um 45 mínútum á viku. Markmiðið er að gera vinnumarkaðinn fjölskylduvænni. Samið verður um hvernig styttri vinnuvika verður útfærð á hverjum vinnustað fyrir sig, það getur verið allt frá því að stytta hvern vinnudag í að fjölga orlofsdögum.

Framkvæmd

Vinnutímastytting tekur í gildi 1. janúar 2020. Atvinnurekendur skulu hafa samráð við launamenn um 
tillögu að útfærslu vinnutímastyttingar á grundvelli eftirfarandi valkosta:

a) Hver dagur styttist um 9 mínútur
b) Hver vika styttist um 45 mínútur
c) Safnað upp innan ársins
d) Vinnutímastyttingu með öðrum hætti

Samkomulag skal hafa náðst um framkvæmd vinnutímastyttingar fyrir 1. desember 2019. 
Ef samkomulag næst ekki styttist vinnutími um 9 mínútur á dag miðað við fullt starf.

Skrifstofufólk:

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag

 

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Óbreytt viðvera nema á föstudögum

 

 

Afgreiðslufólk:

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Óbreytt viðvera nema á föstudögum