Frídagur verslunarmanna

Frídagur verslunarmanna var haldinn hátíðlegur fyrst fimmtudaginn 13. september 1894, skömmu eftir að tilkynnt var á félagsfundi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur að allir kaupmenn og verslunarstjórar stærri verslana í Reykjavík hefðu boðist til að gefa starfsmönnum sínum frídag til að þeir gætu skemmt sér. Frídagur verslunarmanna varð almennur frídagur uppúr miðri síðustu öld. Í ár fellur hann á mánudaginn 3. ágúst. 

Dagurinn er stórhátíðardagur

Frídagur verslunarmanna er stórhátíðardagur og ber að greiða fyrir vinnu þann dag samkvæmt því. Vinnuskylda er ekki á frídögum og stórhátíðardögum 

Stórhátíðarkaup

Öll vinna sem unnin er á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. 

Þetta gildir ekki um reglubundna vinnu, þar sem vetrarfrí eru veitt skv. sérstökum samningum vegna vinnu á umræddum dögum og haldast þar gildandi greiðslureglur óbreyttar.

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni óskar félagsmönnum til hamingju með daginn !