FVSA styrkir Rauða Krossinn

Ingibjörg tekur við styrknum frá Eið
Ingibjörg tekur við styrknum frá Eið

FVSA styrkir Rauða Krossinn

Síðastliðinn mánudag var tekin ákvörðun á stjórnarfundi um að styrkja Rauða Krossinn í Eyjafirði um 350.000,- kr. og er fjárhæðinni ætlað að renna til móttöku flóttafólks frá Úkraínu.

Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri Rauða Krossins í Eyjafirði, tók á móti styrknum frá formanni FVSA, Eið Stefánssyni. Hann sagði af þessu tilefni „það er von félagsins að upphæðin nýtist vel í því þarfa verkefni sem Rauði Krossinn stendur frammi fyrir og að við sem samfélag náum að búa því fólki sem hingað leitar góðan samastað“. 

Félagið vekur athygli á því að Rauði Krossinn stendur fyrir neyðarsöfnun sem ætlað er til að mæta þörfum þolenda átakanna í Úkraínu og veita neyðarþjónustu eins og tryggja aðgengi að mat, vatni, heilbrigðisþjónustu, húsaskjóli og veita sálrænan stuðning. Sú söfnun nær einnig yfir hjálparstarf Rauða krossins fyrir flóttafólk á Íslandi. Hægt er að styðja verkefnið eða gerast Mannvinur með því að fara inn á vefsíðu Rauða Krossins hér