
Í morgun var tekinn í notkun nýr beinþéttnimælir á FSA er Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra gangsetti beinþéttnimælinn formlega. Mælirinn kostar um 10 milljónir króna og er keyptur fyrir styrktarfé frá
velunnurum FSA.
Í þeim hópi eru m.a. sex stéttarfélög í Eyjafirði; Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna á
Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og
nágrennis.
Styttir rannsóknartíma um helming
Beinþéttnimælingar hófust árið 1997 á FSA þegar keyptur var 5 ára gamall beinþéttnimælir frá Landspítala. Til
dagsins í dag hafa verið framkvæmdar um 6.500 beinþéttnimælingar en jafnframt er gefin ítarleg sérfræðiráðgjöf um beinvernd
í tengslum við hverja mælingu. Beinþéttnimælirinn sem nú er tekinn í notkun styttir m.a. rannsóknatíma hverrar
beinþéttnimælingar um helming og þannig verða afköst meiri og rannsóknin enn auðveldari fyrir þann sem gengst undir hana. Öll úrvinnsla
fer nú fram með stafrænum hætti, sem gefur möguleika á að sækja eftir sérfræðiþekkingu um beinþynningu út fyrir FSA.
Úrlestur gagna fer fram í Reykjavík og er jafnan lokið samdægurs með ítarlegri sérfræðingsráðgjöf.
Mælir beinmassa, fitu og vöðvamassa
Eldri mælir var í bráðabirgðahúsnæði en nýja mælinum hefur verið komið fyrir á myndgreiningardeild FSA.
Beinþéttnimælir af þeirri gerð sem nú er tekinn í notkun mælir m.a. beinmassa í hrygg og mjöðm, en gefur einnig kost á
beinþéttnimælingum í öllum beinum líkamans ef þörf þykir. Mælirinn getur einnig framkvæmt magnmælingu á fitu og
vöðvamassa, sem hjálpar við eftirlit á ýmsum sjúkdómum, s.s. átröskun. Að auki er hægt að leggja nákvæmt
stafrænt mat á stærð og fjölda samfallsbrota í hryggjarliðabolum.
Beinþéttnimæling kostar í dag 2.000 krónur fyrir almenning en lægra gjald er fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Konur eldri en fertugar og
karlar eldri en 55 ára geta pantað rannsókn í forvarnaskyni án tilvísunar frá lækni.
Á FSA skal hafa samband við móttöku myndgreiningardeildar í síma 463 0251. Myndgreiningardeild áréttar þó að til að tryggja
bestu sérfræðiráðgjöfina er æskilegt að beinþéttnimælingar séu gerðar í samvinnu við heilsugæslu og
sérgreinalækna. Beinþéttnimælingar eru í boði á um 2ja vikna fresti alla vetrarmánuði ársins. Ýmsar gagnlegar
upplýsingar má finna á heimasíðu Beinverndar (
http://www.beinvernd.is/).