Opið fyrir orlofshúsaumsóknir í sumar

Kæru félagsmenn, 

Búið er að opna fyrir umsóknir um sumarleigu 2022.

Umsóknarfrestur um orlofshús og viku að eigin vali er til 24. mars.

Gagnlegir punktar:

  • Sótt er um á félagavefnum.
  • Sumarleigutímabilið er frá 1. júní til 19. ágúst 2022
  • Umsækjendur fá svar með tölvupósti um úthlutunina um mánaðamót mars/apríl.
  • Þeir sem fá úthlutað þurfa að greiða í síðasta lagi 11. apríl 2022.

Að þessu sinni verður Útilegukortinu ekki úthlutað, en það verður til sölu á skrifstofu félagsins á kostnaðarverði.

Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumarið 2022 og vetrarleigu 2022/2023 á félagavefnum þann 13. apríl kl. 12:00.

Orlofspunktar

Orlofspunktar eru notaðir til að forgangsraða umsóknum við sumarúthlutun. Félagsmenn ávinna sér einn punkt á mánuði.

  • Dæmi: Ef fleiri en einn félagsmaður sækir um sömu vikuna, fær sá félagsmaður úthlutað sem er með flesta punkta.

  • Þeir félagsmenn sem eru með mínus punkta geta fengið úthlutað ef enginn annar sækir um. 

Punktastaða félagsmanna FVSA í janúar 2022:

Fjöldi punkta Hlutfall félagsmanna
0-49 43%
50-99 22%
100-149 12%
150-199 9%
200 + 14%

 

Við hvetjum félagsmenn til þess að hafa samband ef þeir hafa einhverjar spurningar.