Samstarfssamningur milli FVSA og Einingar-Iðju

Eiður Stefánsson og Björn Snæbjörnsson við undirritun samningsins
Eiður Stefánsson og Björn Snæbjörnsson við undirritun samningsins

Samstarfssamningur milli FVSA og Einingar-Iðju

Í morgun var skrifað undir samstarfssamning um nýtingu réttinda félagsmanna milli Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) og Einingar-Iðju. Það voru Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, og Eiður Stefánsson, formaður FVSA, sem undirrituðu samninginn. Samningurinn gildir í eitt ár og verður endurskoðaður mánuði áður en hann rennur út.

Markmið samstarfsins er að auðvelda félagsmönnum aðgang að áunnum réttindum þegar þeir skipta um félag vegna breytinga á starfsvettvangi. Þannig þarf félagsmaður ekki að bíða ávinnslutíma réttinda sinna heldur getur flutt milli félaga þau réttindi sem þegar hafa áunnist. Núverandi regla um 6 mánaða rétt eftir síðustu greiðslu gildir áfram en annars gildir sú regla að greitt hafi verið í a.m.k. 6 mánuði samtals til beggja félaga. Samstarfið felur í sér samnýtingu iðgjalda félagsmanna vegna fræðslusjóðs, orlofssjóðs og sjúkrasjóðs félaganna.

Fyrst félaga til að gera slíkan samning

Björn segir að félögin hafi í raun unnið á þessum nótum undanfarin ár en við ákváðum að setja þessar reglur á blað núna. „Ég veit ekki betur en að Eining-Iðja og FVSA séu þar með fyrst félaga innan ASÍ til að gera slíkan samning. Þetta er mikill gleðidagur því með þessu erum við að stíga stórt skref í að tryggja að réttindi fólks detti ekki niður þegar viðkomandi flytur sig á milli félaganna. Ég vona að svona samningur verði gerður við fleiri félög sem fyrst. Samningurinn mun líka verða til þess að við gerum meiri kröfu á að félagsmenn verði í þeim félögum sem hefur samningsumboð fyrir viðkomandi.“

Tímamótasamningur

Eiður segir að þetta sé tímamótasamningur. „Þetta gerir félagsmönnum auðveldara að fara á milli félaga og vera í réttu stéttarfélagi sem skiptir gríðarlega miklu máli. Þá er ég að tala um að vera í því stéttarfélagi sem er með þann kjarasamning sem starfsmaðurinn er að fá greidd laun eftir. Ég vona að þetta sé upphafið að fleiri sambærilegum samningum milli stéttarfélaga.“

Undirritun samstarfssamnings FVSA og Einingar-Iðju