Sérkjarasamningur við innanlandsflug Icelandair samþykktur

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan sérkjarasamning Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Landssambands íslenzkra verzlunarmanna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd innanlandsflugs Icelandair liggja nú fyrir, en samningurinn var samþykktur með 71,43% greiddra atkvæða.

Alls voru voru 51 félagi innan Landssambands íslenzkra verzlunarmanna á kjörskrá, þar af nýttu 21 atkvæðisrétt sinn, eða 41,18%. Alls samþykktu 15 manns samninginn, eða 71,43%, nei sögðu 5 eða 23,81% og 1 tók ekki afstöðu eða 4,76%. 

Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð frá fimmtudeginum 11. apríl 2024 og til hádegis í dag þriðjudaginn 16. apríl. Kosningarétt hafði allt félagsfólk FVSA/LÍV sem starfar samkvæmt þessum samningi.