Síðasti skiladagur vegna styrkja 2019

Vekjum athygli á að skila þarf gögnum til félagsins vegna styrkja úr sjúkrasjóði og starfsmenntasjóði í síðasta lagi 27. desember nk.
Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar og færist sem styrkur 2020.
Þeir sem fengu úthlutað orlofsstyrk vegna 2019 þurfa einnig að skila inn gögnum í síðasta lagi 27. desember ef þeir ætla að nýta styrkinn, annars fellur hann niður.