Ég vil rýna til gagns

Hafðu áhrif - kíktu í kaffi!

Við leitum leiða til að bæta þjónustuna og viljum heyra frá þér!

Það skiptir okkur máli að félagsmenn fái tækifæri til þess að hafa áhrif innan félagsins og því bjóðum við þér að taka þátt í samtali um framtíð FVSA. Í hverjum samtalshóp verða um 6-8 manns og tekur spjallið um 60 mínútur. Við munum ræða um þjónustuna, sjóði félagsins, orlofsmál, ásýnd félagsins og framtíð. Þitt álit skiptir máli!

Þú getur valið þér samtalstíma hér fyrir neðan og/eða sent okkur ábendingu eða hrós. Bókaðu tíma og hafðu áhrif, við hlökkum til að hitta þig!

Veldu þá dagsetningu sem hentar þér. Dagsetningar eftir áramót - 2022

Við bókum þann tíma sem þú velur. Við sjáumst svo á skrifstofu félagsins, þriðju hæð Skipagötu 14 - 600 Akureyri