Opnað fyrir vetrarleigu til og með áramótum

Vegna innleiðingar á nýju orlofshúsakerfi er nú opnað fyrir vetrarleigu í áföngum. Næst verður opnað fyrir bókanir sem hér segir:

  • Miðvikudaginn 17. sept. kl. 12:00 verður opnað fyrir leigu orlofshúsa á tímabilinu 1. nóv. til og með áramótum og gildir þá fyrstur bókar fyrstur fær.

Ekki verður tekið við beiðnum um biðlista. Við hvetjum félagsfólk til þess að fylgja okkur t.d. á Facebook og skoða vef félagsins til að fá fréttir af því hvenær nýja orlofshúsakerfið verður opnað.

  • Einnig er gott að ganga úr skugga um að netfang sé rétt skráð inni á félagavefnum, en við munum senda út tilkynningu á netföng félagsfólks um opnunina.

Leiðbeiningar um skráningu netfangs á félagavefinn má finna hér.