Einarsstaðir á Héraði

Austurland
42.000 kr. (Vika)
45 fm 5 rúm
Heitur pottur
Gasgrill

Innifalið

Ekki innifalið

Einarsstaðir eru á Völlum Fljótsdalshéraði, í 12 km fjarlægð frá Egilsstöðum, stutt er inn í Skriðuklaustur og í Hallormsstaðaskóg. Um 100 km eru inn að Kárahnjúkastíflu.

Húsið er nýlega uppgert hús 45 m2. Í því eru 2 svefnherbergi og er svefnaðstaða er fyrir 5 manns. Í öðru herberginu er tvíbreitt rúm og rúm yfir en í hinu tvíbreitt rúm. Setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni.  

Reyklaus bústaður. Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr

Skiptidagar:  Orlofshúsin eru leigð viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 16:00 og 19:00 og brottför er í síðasta lagi kl. 12:00. 

Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.

Leigutími: Sumarleiga
Lyklar eru í lyklaskáp sem er staðsettur er við útidyr, skal lyklum skilað í lyklaskápinn aftur við brottför.