Endurgreiðsla inneignarbréfa Niceair

Stjórn Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) hefur tekið þá ákvörðun að endurgreiða þeim félagsmönnum sem keyptu inneignarbréf Niceair í gegnum félagið en gátu ekki nýtt þau vegna gjaldþrots Niceair.

Hægt verður að sækja um endurgreiðslu á inneignarbréfum til og með 31. ágúst 2023.

Athugið að félagið endurgreiðir aðeins þau inneignarbréf sem ekki hafa fengist bætt í gegnum tryggingar umsækjanda. 

Til að sækja um endurgreiðslu vinsamlegast fyllið út umsóknareyðublað hér.