Sumarhús á Spáni 2024

Félagsmenn geta nú bókað íbúð í nýlegu þriggja hæða fjölbýlishúsi á Spáni, Villamartín Soleil, sumarið 2024. Íbúðin er í bæjarfélaginu Orihuela, í hverfi sem heitir Villa Martin. Rétt tæplega klukkutíma akstur er frá flugvellinum á Alicante að húsinu.

Um er að ræða rúmgóða íbúð á jarðhæð í fjölskylduvænum, afgirtum íbúðakjarna með flottri útiaðstöðu, verönd beggja vegna og aðgengi að sameiginlegu, niðurgröfnu sundlaugasvæði á næstu hæð fyrir neðan íbúðina. Lyfta og gott hjólastólaaðgengi er í íbúðakjarnanum. Um tuttugu mínútna akstur er niður á strönd.

Opið verður fyrir bókanir frá hádegi mánudaginn 16. október til 31. október og gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt verður að leigja eina eða tvær samfelldar vikur. Leiguverð per. viku er 70.000,- kr. í maí og 120.000,- kr. í júní, júlí og ágúst. Staðfestingargjald per. viku er 30.000,- kr., greiðist við bókun og er ekki endurgreiðanlegt.

Nánari upplýsingar um íbúðina má finna HÉR