Mánatún 1 - 302

Höfuðborgarsvæðið
26.998 kr. (fös-sun)
35.662 kr. (Vika)
81 fm 2 rúm
Barnarúm
Nettenging

Innifalið

Ekki innifalið

Tveggja herbergja íbúð í Mánatúni 1, á þriðju hæð. Íbúðin er nýleg og vel búnin. Eitt svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgóð stofa, vel búið eldhús með uppþvottavél, baðherbergi með sturtu og þvottahúsi með þvottavél og þurrkara. Gistiaðstaða er fyrir tvo einstaklinga í íbúðinni.

  • Reyklaus íbúð (á líka við um veip)
  • Gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni
  • Vakin er athygli á því að eftirlitsmyndavélar eru í sameign
  • Ekki er boðið upp á leigu á rúmfatnaði

Leigjandi þarf ekki að ryksuga, skúra eða þrífa baðherbergi en þurrka þarf af öllum borðum, stólum og því um líku, einnig að ganga frá öllu á sinn stað. Sé illa gengið frá kemur til aukakostnaður á leigjanda.

Vetur / Skiptidagar: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í íbúðina eftir kl. 17. á upphafsdegi leigu. Íbúðin skal rýmd eigi síðar en kl. 13. á brottfarardag.

Sumar / Skiptidagar: Íbúðirnar eru leigðar í viku í senn yfir sumartímann og skipt á miðvikudögum. Íbúðirnar eru til afhendingar kl. 17 en dvalargestir þurfa að skila íbúðunum kl. 13 á skiptidögum.

Að gefnu tilefni viljum við benda leigendum á að ALLT rusl verður að fara inn í ruslageymslu sem eru staðsett við innkeyrslu í bílakjallarann, lykill af ruslageymslu er á lyklakippunni ásamt húslykli, aðgangsdropa og fjarstýringu af bílageymslu.

Bílastæði

Bílastæði í bílakjallara fylgir með íbúðinni og er númer stæðisins merkt á lyklakippu. 

Félagið á að auki tvö bílastæði í bílakjallara þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíla, nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu þegar lyklar eru afhentir.

  • Notendur þurfa að hafa með eigin kapal til að tengja við stöðina
  • Athugið að þessi tvö stæði eru einungis hugsuð sem hleðslustæði, um leið og biðfreið er fullhlaðin skal færa hana svo aðrir komist að

Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.

Umsjón með íbúðinni hefur FVSA sími 455 1050. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við starfsfólk FVSA sjá upplýsingar hér. 

Leigutími: Allt árið
Lyklar eru afhentir á skrifstofu